29. apríl 2015 |
Sigmundur dundar við selfí
Jóni Atla Játvarðarsyni á Reykhólum hefur pólitíkin löngum verið hugleikin og fæðast þá oft vísur. Í morgun var hann að lesa DV á netinu, sá þar myndina af tveimur landsfeðrum okkar sem hér fylgir, og þá fæddist þetta:
Véfréttin dembist frá Delfí,
dáðunum Bjarni að hlær.
Sigmundur dundar við selfí,
sagnfræðin til hans ei nær.