14. janúar 2014 | vefstjori@reykholar.is
Síldin í Hvammsfirði eingöngu ungsíld
Síldin sem tilkynnt var um í Hvammsfirði reyndist vera smásíld, segir í Morgunblaðinu í dag. Hún er þar í umtalsverðu magni, samkvæmt mælingum Hafró, en ennþá er verið að reikna út magnið. „Þetta er örugglega síld, að minnsta kosti lítum við svo á þangað til annað kemur í ljós,“ sagði Bergsveinn Reynisson á Gróustöðum í samtali við Reykhólavefinn á aðfangadag. Hann og félagi hans, Jóhannes Haraldsson frá Kletti í Kollafirði, hafa lengi fylgst með lífríkinu í Breiðafirði, en Hvammsfjörður er einn af innfjörðum hans.
Í Morgunblaðinu segir enn fremur:
- Hafrannsóknastofnun fékk fréttir af því að töluvert væri af síld í Hvammsfirði. Var talið hugsanlegt að þangað hefði farið til vetrardvalar sá hluti veiðistofns síldar sem vísindamenn hafa ekki fundið í vetur. Þorsteinn Sigurðsson, sviðsstjóri nytjastofna hjá Hafrannsóknastofnun, segir að það hafi ekki reynst vera rétt. Þarna hafi eingöngu verið ungsíld, af árgangi 2012.
- Þótt vitað sé að smásíld hafi áður verið í Hvammsfirði segir Þorsteinn að komið hafi á óvart hversu mikið er þar í vetur. Verið er að reikna út mælingar sem gerðar voru með Dröfn RE fyrir helgi og liggja niðurstöður ekki fyrir.
- Dröfnin kannaði einnig önnur svæði við sunnanverðan Breiðafjörð, m.a. Kolgrafafjörð. Þar reyndist vera svipað magn og mælst hefur undanfarnar vikur.
► 24.12.2013 Er síldin sem hvarf inni í Hvammsfirði?