Tenglar

10. nóvember 2016 | Umsjón

Silfurvottun hjá EarthCheck

1 af 2

Sveitarfélögin á Vestfjörðum hafa hlotið silfurvottun frá umhverfisvottunarsamtök-unum EarthCheck. Eru þetta mikil gleðitíðindi fyrir sveitarfélögin, sem hafa unnið að þessu verkefni allt frá árinu 2012, segir í tilkynningu frá Fjórðungssambandi Vestfirðinga.

 

Sveitarfélögin níu á Vestfjörðum hafa undanfarin þrjú árin staðist viðmið og viðurkenningu sem umsóknarsvæði, en sumarið 2016 var ákveðið að stíga skrefið að fullu og sækja um fulla vottun fyrir starfsárið 2015. Verkefnið hefur verið fjármagnað af hálfu sveitarfélaganna, en nú á þessu ári var verkefnið samþykkt sem áhersluverkefni í Sóknaráætlun Vestfjarða 2015-2019 og með því aukna fjármagni var kleift að taka þennan áfanga.

 

Fjórðungssamband Vestfirðinga hefur haft umsjón með verkefninu fyrir hönd verkefnastjórnar sveitarfélaganna, en dagleg stjórn hefur verið í höndum Línu Bjargar Tryggvadóttur, verkefnastjóra sambandsins.

 

Vottunarsamtökin EarthCheck eru alþjóðleg samtök með höfuðstöðvar í Ástralíu, þróuð af fyrirtæki sem er í eigu ástralskrar ferðaþjónustu, ríkis og háskóla. EarthCheck eru einu samtökin sem umhverfisvotta starf sveitarfélaga.

 

Vottunin er veitt fyrir starfsemi sveitarfélaganna níu á Vestfjörðum. Þar eru ýmsir þættir skoðaðir, eins og innkaup sveitarfélaga, orkunotkun og nýting, vatnsnotkun og nýting, sorpförgun og endurvinnsla, ásamt ýmsum öðrum þáttum.

 

Sveitarfélögin hafa einnig staðið að verkefninu Plastpokalausir Vestfirðir. Það verkefni er sprottið út frá umhverfisvottunarverkefninu og hefur verkefnastjóri Fjórðungssambandsins stýrt því samhliða.

 

Vottunin er mikil gleðitíðindi fyrir sveitarfélögin, sem hafa með þessu verkefni sýnt fordæmi í umhverfisvitund og fylgja í fótspor sveitarfélaganna á Snæfellsnesi, en þau eru með vottun frá EarthCheck, segir í tilkynningu FV.

 

Verkefnið Plastpokalausir Vestfirðir (júlí 2016)

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31