25. febrúar 2013 | vefstjori@reykholar.is
Símenntunarmiðstöðin: Enska í fjarnámi
Símenntunarmiðstöðin á Vesturlandi minnir á enskunámskeið í fjarkennslu, sem hefst 4. mars og stendur í tíu vikur. Samskiptin við kennara fara fram gegnum netið. Námskeiðið byggist á úrvinnslu verkefna og heimalestri. Málnotkun fer fram munnlega eftir samkomulagi við kennara. Allir nemendur fá námskeiðsmat í lokin.
Nánar hér um þetta námskeið og önnur á vef Símenntunarmiðstöðvarinnar á Vesturlandi.