13. ágúst 2012 |
Sjálfboðaliðakvöld á bókasafninu
Eins og stundum áður er óskað eftir sjálfboðaliðum annað kvöld, þriðjudagskvöld, til aðstoðar á Héraðsbókasafni Reykhólahrepps í gamla íþróttasalnum í Reykhólaskóla. Störfin þar hefjast strax að loknum súpufundinum sem verður í matsal skólans og stendur væntanlega eitthvað fram eftir áttunda tímanum.
Tilvalið að koma í villisveppasúpuna og hlusta á Hörpu Eiríksdóttur og spyrja hana út úr og fylgja henni síðan yfir á bókasafnið.