15. júní 2013 | vefstjori@reykholar.is
SjávarSmiðjan á Reykhólum opnuð fyrir sumarið
SjávarSmiðjan á Reykhólum verður opnuð í dag og verður opin alla daga í sumar milli kl. 14 og 18. Utan þess tíma er hún opnuð eftir samkomulagi eins og áður. Þetta er þriðja sumarið sem SjávarSmiðjan starfar, en þar eru í boði heilsuböð (breiðfirsku þaraböðin) og líka heilsuvörur af margvíslegu tagi, auk þess sem þar er kaffihús.
Í þaraböðum SjávarSmiðjunnar blandast saman gæðavottað þarahráefnið frá Þörungaverksmiðjunni og hveravatnið á Reykhólum. Þaraböðin stuðla að vellíðan gesta þar sem þeir slaka á um leið og þeir virða fyrir sér hina sérstöku náttúru sem við blasir.
► Vefur SjávarSmiðjunnar á Reykhólum - ítarlegar upplýsingar um allt það sem þar er í boði