Sjónvarpið: Mynd sem gerist í perlu Reykhólahrepps
Brúðguminn, margverðlaunuð mynd Baltasars Kormáks, er á dagskrá Sjónvarps kl. 21.35 í kvöld, sunnudag. Hún gerist í Flatey á Breiðafirði, einni af perlum Reykhólahrepps, sem er nátengd höfundinum Baltasar Kormáki. Flestir kannast að líkindum við myndskreytingarnar sem eru í hvelfingu Flateyjarkirkju og altaristöfluna sem myndlistarmaðurinn Baltasar, faðir Baltasars Kormáks, málaði á sínum tíma. Þar getur ekki aðeins að líta ýmsa Flateyjarbúa fyrri tíða heldur einnig listamanninn sjálfan á altaristöflunni.
Í kynningu á myndinni á vef RÚV segir:
- Bíómynd eftir Baltasar Kormák frá 2008 um háskólakennara sem er að fara að gifta sig inn í skringilega fjölskyldu í Flatey. Jón er nú að kvænast öðru sinni. Í þetta sinn konu sem er helmingi yngri en hann og fyrrum nemandi hans í Háskólanum. Brúðkaupið er haldið í Flatey á Breiðafirði. Ekki eru allir hrifnir af ráðahagnum og í þeim hópi eru tilvonandi tengdaforeldrar Jóns. Þegar gestirnir fara að flykkjast að í eynni fara að renna tvær grímur á brúðgumann. Hann rifjar upp hvernig á því stóð að hann tók sér ársleyfi frá kennslu og fluttist út í Flatey ári áður með þáverandi konu sinni, Önnu.
- Leikstjóri er Baltasar Kormákur og hann er líka höfundur handrits ásamt Ólafi Egilssyni.
- Meðal leikenda eru Hilmir Snær Guðnason, Þröstur Leó Gunnarsson, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Ólafur Darri Ólafsson, Jóhann Sigurðarson, Margrét Vilhjálmsdóttir, Ilmur Kristjánsdóttir og Laufey Elíasdóttir.
- Brúðguminn hlaut fjórtán tilnefningar til Edduverðlauna á sínum tíma og aðstandendur myndarinnar fóru heim með sjö verðlaun.
- Myndin var kosin kvikmynd ársins, Helga I. Stefánsdóttir var verðlaunuð fyrir búninga, Ólafía Hrönn Jónsdóttir var valinn besta leikkona í aukahlutverki og Þröstur Leó Gunnarsson fékk Edduna sem besti leikari í aukahlutverki. Hilmir Snær Guðnason var valinn besti leikari í aðalhlutverki, Atli Geir Grétarsson og Grétar Reynisson voru verðlaunaðir fyrir leikmynd ársins og loks hlaut Bergsteinn Björgúlfsson Edduverðlaun fyrir kvikmyndatöku í Brúðgumanum.
Á myndum 2-5 má sjá myndskreytingar Baltasars í kirkjunni í Flatey. Árni Geirsson tók þær og miklu fleiri á liðnu sumri í Flateyjarferð með Birni Samúelssyni hjá Eyjasiglingu. Fjölmargar myndasyrpur Árna úr Reykhólahreppi frá liðnum árum, margar teknar á svifi, má sjá undir Ljósmyndir, myndasöfn ► Ýmis myndasöfn ► Árni Geirsson í valmyndinni vinstra megin.