Tenglar

13. janúar 2010 |

Sjónvarpstæki frá Krabbameinsfélagi Breiðfirðinga

Krabbameinsfélag Breiðfirðinga hefur fært Krabbameinsfélagi Íslands að gjöf 26 tommu LCD-sjónvarp af gerðinni Finlux til notkunar í íbúðum fyrir krabbameinssjúka sem þurfa að dvelja í Reykjavík til lækninga og fyrir aðstandendur þeirra. Tækið er í íbúð 205 að Rauðarárstíg 33 í Reykjavík, en þar eru íbúðir sem ætlaðar eru til afnota fyrir krabbameinssjúklinga og aðstandendur þeirra af landsbyggðinni meðan á meðferð stendur. Krabbameinsfélag Íslands á þar átta íbúðir með öðrum samtökum, svo sem Rauða krossi Íslands.
 
Krabbameinsfélag Breiðfirðinga greiðir að hluta eða fullu fyrir leiguna vegna sjúklinga úr Dölum og Reykhólahreppi. Úthlutun íbúðanna fer fram á Geisladeild Landspítalans í síma 543 6800 og þar fást nánari upplýsingar.

 

Einnig eru í boði hvíldarvikur á ýmsum stöðum á landinu fyrir sjúklinga og aðstandendur þeirra. Nánari upplýsingar fást hjá Krabbameinsfélagi Íslands eða á vef félagsins. Þá er Krabbameinsfélagið með margs konar aðra þjónustu við fólk sem greinst hefur með krabbamein.

 

Stjórnarmenn í Krabbameinsfélagi Breiðfirðinga ítreka, að hér á svæðinu vill félagið gjarnan stofna þjónustuhóp fyrir fólk sem greinst hefur með krabbamein, ef næg þátttaka væri. Fólk er hvatt til að hafa samband.

 

Frekari upplýsingar er hægt að fá hjá stjórnarmönnum í Krabbameinsfélagi Breiðfirðinga, sem eru Jóna Valgerður Kristjánsdóttir, Mýrartungu II, Arnór Grímsson, Króksfjarðarnesi, Guðrún Björnsdóttir, Búðardal, og Þrúður Kristjánsdótttir, Búðardal.

 

Vefur Krabbameinsfélags Íslands

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31