23. apríl 2015 |
Sjónvarpsþáttur um Vestfjarðavíkinginn
Á liðnu sumri var keppt í Reykhólahreppi í tveimur greinum Vestfjarðavíkingsins, annars vegar við Bjarkalund í bóndagöngu og hins vegar við Reykhólaskóla í jafnhöttun steina. Að venju fylgdust sjónvarpsmenn með og verður þáttur um Vestfjarðavíkinginn 2014 í Sjónvarpinu kl. 19.35 í kvöld. Þetta var í 22. skiptið sem þessi keppni er haldin.
Á myndinni sem hér fylgir er Hafþór Júlíus Björnsson (Fjallið) á Reykhólum fyrir þremur árum. Þessa dagana er hann í Kuala Lumpur að keppa um titilinn Sterkasti maður heims.