16. október 2013 | vefstjori@reykholar.is
Sjúkraþjálfun á vegum Heilbrigðisstofnunarinnar
Helgi Pálsson, sjúkraþjálfari hjá Sjúkraþjálfun Vestfjarða á Ísafirði, mun frá og með 22. október sinna sjúkraþjálfun tvisvar í viku við Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Hólmavík. Hægt er að bóka tíma hjá Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Hólmavík í síma 432 1400 á afgreiðslutíma heilsugæslu eða hjá Helga Pálssyni í síma 869 5145.