Tenglar

27. apríl 2012 |

Skammtímasamningur gerður við dýralækni

Matvælastofnun hefur gert þjónustusamning við Gísla Sverri Halldórsson dýralækni um að taka að sér almenna dýralæknisþjónustu og bráðaþjónustu í Reykhólahreppi og öðrum sveitarfélögum sem tilheyra þjónustusvæði 2 (Dalabyggð og sveitarfélög í Strandasýslu), sbr. 2. gr. reglugerðar nr. 846/2011 um dýralæknaþjónustu í dreifðum byggðum. Um er að ræða skammtímasamning sem gildir næsta mánuð eða frá 1. maí til 1. júní.

 

Áfram er unnið að því að tryggja varanlega dýralæknaþjónustu á þjónustusvæði 2.

 

Gísli Sverrir mun hafa aðstöðu að Ægisbraut 19 í Búðardal. Símanúmer hans eru 434 1122 og 862 9005.

 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Matvælastofnun.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31