Skerðingin á póstþjónustunni frestast um mánuð
Eins og hér hefur verið fjallað um átti dreifingardögum pósts í Reykhólahreppi að fækka um helming núna um þessi mánaðamót, þannig að honum yrði aðeins dreift annan hvern virkan dag. Í samtali við Reykhólavefinn í gærkvöldi sagði Guðbjörn Guðmundsson landpóstur, að honum hefði verið tjáð að þetta myndi ekki taka gildi fyrr en um næstu mánaðamót þegar uppsagnarfrestur hans rennur út.
Reyndar er komið á þriðja ár síðan hætt var að dreifa pósti lengra en í Bjarkalund nema þrjá daga í viku. Hefur öll Gufudalssveitin auk Kinnarstaða og Hofsstaða búið við þá tilhögun síðan. Pósti verður áfram komið til Flateyjar með sama hætti og verið hefur, eða frá Stykkishólmi tvisvar í viku.
16.02.2016 Ráðherra ritað bréf vegna skerðingar á póstþjónustu
01.02.2016 Undanþága frá lögum veitt í reglugerð
27.01.2016 Aðför að dreifðum byggðum
21.01.2016 Guðbirni pósti sagt upp
08.01.2016 Pósturinn: Dreifingardögum fækkað um helming