Tenglar

31. janúar 2015 |

Skíðagönguæfing við Hríshól í Reykhólasveit

Myndin er fengin af Facebooksíðu Skíðafélags Strandamanna.
Myndin er fengin af Facebooksíðu Skíðafélags Strandamanna.

UPPFÆRT Skíðafélag Strandamanna verður með skíðagönguæfingu í Reykhólasveit kl. 13-14.30 á morgun, sunnudag. Hún er öllum opin, börnum jafnt sem fullorðnum. Umsjónarfólk verður með skíðabúnað meðferðis fyrir þá sem vilja prófa. Að æfingu lokinni verður farið í sund í Grettislaug á Reykhólum, en hún verður opin kl. 15-17.

 

Æfingin verður annað hvort við Reykhóla eða við Hríshól. Greint verður frá því á Facebooksíðu Skíðafélags Strandamanna á hvorum staðnum það verður, jafnskjótt og það hefur verið ákveðið.

 

► Uppfært: Gangan verður við Hríshól og hefst kl. 13.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31