Tenglar

7. febrúar 2014 | vefstjori@reykholar.is

Skíðagönguæfingar og margvísleg ævintýri

Skíðagönguæfingar eru byrjaðar hjá Skíðafélagi Strandamanna. Skíðasvæðið er í Selárdal við botn Steingrímsfjarðar en ef þar er lítill snjór er farið upp á Þröskulda eða Steingrímsfjarðarheiði. „Æfingarnar eru öllum opnar og okkur langar að bjóða börnum úr Reykhólahreppi að koma á æfingar með okkur. Þar er mikil áhersla lögð á skemmtilega skíðaleiki ásamt því að við æfum skíðagöngu bæði með hefðbundinni aðferð og frjálsri aðferð,“ segir Ragnar Bragason, skíðagönguþjálfari hjá Skíðafélagi Strandamanna.

 

Einnig verða í vetur sérstakar þemaæfingar, t.d. furðufataæfing í tengslum við öskudaginn, leikjahátíð, vinaæfing, fjölskyldudagur og óbyggðaferðir. Hápunkturinn er að fara á Andrésar andar leikana á Akureyri seinnipartinn í apríl. Nánari upplýsingar um æfingar og starf Skíðafélags Strandamanna eru á heimasíðu félagsins.

 

Myndirnar sem hér fylgja eru af kátu fólki á ýmsum aldri við æfingar og keppni hjá Skíðafélagi Strandamanna.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Jl 2024 »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31