19. febrúar 2018 | Sveinn Ragnarsson
Skógarstrandarvegur - hagkvæmnisathugun
„Alþingi ályktar að fela samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra að hlutast til um að gerð verði fjölþætt hagkvæmnisathugun á uppbyggingu Skógarstrandarvegar á norðanverðu Snæfellsnesi, milli Búðardals og Stykkishólms, sem heilsársvegar.“
Þannig hefst tillaga til þingsályktunar sem Bjarni Jónsson er flutningsmaður að. Bjarni bendir á að uppbygging vegarins á þessari leið styrki byggð og samfélag við Breiðafjörð og reyndar á Suðurfjörðum og Ströndum líka.