15. mars 2014 | vefstjori@reykholar.is
Skorað á N1 að fresta lokuninni
Í gærkvöldi var stofnað til undirskriftasöfnunar, þar sem því er beint til N1 að fresta lokun eldsneytisafgreiðslunnar í Króksfjarðarnesi fram á haustið. Þegar þetta er ritað hefur nokkuð á fimmta tug fólks skrifað undir. Þeir sem það gera geta valið hvort nöfn þeirra birtast opinberlega eða ekki. Þegar skrifað hefur verið undir kemur til baka í netfangið sjálfvirkur póstur sem staðfesta þarf.
► Slóðin á undirskriftasöfnunina
► Dælunum í Nesi lokað nánast fyrirvaralaust