15. desember 2011 |
Skötuveislan á Þorláksmessu á sínum stað
Ekki er ráð nema í tíma sé tekið: Árleg skötuveisla Reykhóladeildar Lions verður í matsal Reykhólaskóla á Þorláksmessu milli kl. 12 og 14. Saltfiskur verður í boði fyrir þá sem treysta sér ekki í skötuna. Allir velkomnir. Verð kr. 2.000 (enginn posi á staðnum) en frítt fyrir 12 ára og yngri.
Hér verður nánar greint frá veislunni þegar nær dregur.