Tenglar

22. október 2014 | vefstjori@reykholar.is

Skotveiði bönnuð á ýmsum jörðum í Reykhólahreppi

UPPFÆRT Rjúpnaveiði og önnur skotveiði er stranglega bönnuð í landareignum þeirra jarða í Reykhólahreppi sem taldar eru hér fyrir neðan. Fylgst er með því eins og kostur er hvort gegn banninu er brotið. Ef eigendur eða umráðamenn vilja tilkynna hér um veiðibann á fleiri jörðum í hreppnum má senda tölvupóst í netfangið vefstjori@reykholar.is eða hringja í síma 892 2240. Þá verður þessi listi uppfærður jafnóðum.

  • Gillastaðir
  • Skáldstaðir
  • Berufjörður
  • Hafrafell 3
  • Hyrningsstaðir
  • Kinnarstaðir
  • Króksfjarðarnes
  • Skógar
  • Múli í Þorskafirði
  • Þórisstaðir
  • Gröf í Þorskafirði

Ástþór Ágústsson í Múla í Ísafirði (innst í Ísafjarðardjúpi) biður um að eins og undanfarin ár verði vakin athygli á því sem hann sendi til birtingar hér á vefnum á sínum tíma varðandi Kollafjarðarheiði. Það sé enn í fullu gildi. Þar segir hann: 

  • Á undanförnum árum hefur borið á því að veiðimenn komi upp á Kollafjarðarheiði úr Kollafirði og séu að skjóta á heiðinni og víðar án leyfis. Meðal annars hefur orðið vart við veiðimenn í landi Múla í Ísafirði, sem er þó í allnokkurri fjarlægð frá vegslóðanum á heiðinni. Mér datt í hug hvort þú gætir sett á listann að þeir veiðimenn sem ætla sér á Kollafjarðarheiði kynni sér hvar lönd jarða liggja og veiði aðeins þar sem leyfi liggur fyrir.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31