17. maí 2009 |
Skráning í Vinnuskóla Reykhólahrepps stendur yfir
Vinnuskóli verður starfandi hjá Reykhólahreppi í sumar frá 8. júní til 18. júlí. Rétt til vinnu hafa unglingar fæddir á árunum 1993-96. Helstu verkefni verða sem fyrr garðsláttur og hreinsun opinna svæða, lítils háttar viðhaldsverkefni og annað tilfallandi. Flokksstjóri verður Jón Kjartansson eins og í fyrra.
Nánari upplýsingar um skráningu, launataxta og annað er að finna hér. Tekið skal fram, að hjólbörurnar á myndinni eru ekki hluti af tækjakosti Vinnuskóla Reykhólahrepps heldur er hér um eldra módel að ræða.