Skráning í Vinnuskólann stendur yfir
Vinnuskóli verður starfandi hjá Reykhólahreppi frá 9. júní til 18. júlí. Rétt til starfa í vinnuskólanum hafa börn fædd 1992-95. Helstu verkefni verða sem fyrr garðsláttur og hreinsun opinna svæða, svo og lítils háttar viðhaldsverkefni. Vinnutími er kl. 9-16. Gert er ráð fyrir að sextán ára unglingar vinni með sláttuorf og erfiðari störf. Flokksstjóri verður Jón Kjartansson. Vinsemd og virðing eru höfð að leiðarljósi í vinnuskólanum.
Skráning fer fram hjá skrifstofu Reykhólahrepps í síma 434 7880 eða í netfanginu skrifstofa@reykholar.is til 1. júní, þar sem fram þarf að koma nafn, kennitala, símanúmer og launareikningur. Skráningareyðublað er einnig að finna hér á vef Reykhólahrepps (Umsóknir - Vinnuskólinn, reglur og eyðublað).
Launataxtar:
13 ára - fædd 1995 kr. 305 á klst.
14 ára - fædd 1994 kr. 341 á.klst.
15 ára - fædd 1993 kr. 383 á klst.
16 ára - fædd 1992 kr. 503 á klst.