Tenglar

20. apríl 2012 |

Skrugga - myndir - aukasýning

Um hundrað manns komu á kaffihúsið og örleikritin hjá Skruggu í íþróttahúsinu á Reykhólum að kvöldi síðasta vetrardags. Nú hefur verið ákveðið að hafa aukasýningu á þáttunum fjórum kl. 21 á sunnudagskvöld en þá verður ekki kaffihús líka.

 

Verð á leiksýninguna á sunnudagskvöld verður kr. 1.000 og enginn posi.

 

Svipmyndirnar sem hér fylgja tók Dagný Stefánsdóttir. Þar getur að líta myndir af leikendum á sviðinu og aðrar teknar baksviðs og enn aðrar á „kaffihúsinu“ í hléinu.

 

Gamanþættirnir Í bíltúr og Á heimilinu eru eftir Maríu Guðmundsdóttur hjá Leikfélagi Mosfellssveitar, Hjónabandsmiðlunin er eftir óþekktan höfund en Amma í stuði með Guði er eftir Sólveigu Sigríði Magnúsdóttur (Sollu Magg), formann Skruggu, sem jafnframt er leikstjóri. Leikendur eru fimmtán auk gítarleikara.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31