17. nóvember 2014 | vefstjori@reykholar.is
Skrugga: Leikþættir, söngur, grín og gleði
Kaffihússfagnaður Leikfélagsins Skruggu, sem frestað var um daginn vegna slæms veðurútlits, verður haldinn í íþróttahúsinu á Reykhólum núna á fimmtudagskvöldið, 20. nóvember. Þarna verða leikþættir og söngur, grín og gleði, og kaffi og meðlæti í hléi.
Skemmtunin hefst kl. 20 en húsið verður opnað hálftíma fyrr.
Aðgangseyrir kr. 2.500 og leikskrá innifalin.