12. september 2010 |
Skrugga hin nýja heldur aðalfund í lok fyrsta starfsárs
Aðalfundur Leikfélagsins Skruggu í Reykhólahreppi verður haldinn annað kvöld, mánudagskvöld, í húsnæði Hlunnindasýningarinnar á Reykhólum og hefst kl. 20.30. Félagið var endurvakið fyrir um ári en félag með sama nafni starfaði í héraðinu á árum áður. Auk venjulegra aðalfundarstarfa verður fjallað um starfsemi næsta leikárs. Nýir félagar velkomnir.
Sjá einnig:
12.11.2009 Endurvakin Skrugga í kvennagreipum