Tenglar

19. júní 2012 |

Skundi litli í heimsókn í Bjarkalundi

Kolbrún Pálsdóttir / skjáskot úr viðtalinu.
Kolbrún Pálsdóttir / skjáskot úr viðtalinu.

Tónlistarmaðurinn Þorsteinn Haukur Þorsteinsson, betur þekktur sem Skundi litli, kom í heimsókn í Bjarkalund fyrir stuttu og tók þar upp myndskeið þar sem hann litaðist um úti og inni og ræddi við Kolbrúnu Pálsdóttur hótelstýru. Gerð er ítarleg grein fyrir hinni miklu yfirhalningu sem staðurinn hefur fengið á síðustu árum og þeim framkvæmdum sem standa þar enn. Líka er vikið að hátíðinni um aðra helgi í tilefni þess að 29. júní eru 65 ár liðin frá vígslu þessa elsta sveitahótels landsins.

 

Myndskeiðið er að finna á BB-sjónvarpi sem hóf göngu sína á fréttavefnum bb.is á Ísafirði fyrir tæpum tveimur vikum. Þar er nú þegar kominn inn fjöldi fréttaviðtala, fréttaskýringa og þátta bæði gamalla og nýrra.

 

Smellið hér til að horfa og hlusta

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31