14. desember 2015 |
Sláttubók Bjarna Guðmundssonar á Hvanneyri
Allnokkrir hafa haft samband við Bjarna Guðmundsson prófessor á Hvanneyri og spurst fyrir um það hvar fáanleg sé bókin hans Íslenskir sláttuhættir, sem út kom í haust. Á vef Landbúnaðarsafns Íslands segir Bjarni m.a.: „Bókin mun ekki, skv. lauslegri athugun, hafa lent í því safni titla sem dagvöruverslanir telja að best henti landsmönnum fyrir þessi jól.“