15. ágúst 2013 | vefstjori@reykholar.is
Slökkviliðsmenn minnast látins félaga
Í dag er flaggað í hálfa stöng við stjórnsýsluhúsið á Reykhólum auk þess sem bíll Slökkviliðs Reykhólahrepps stendur við fánastöngina. Slíkt er gert um land allt í minningu sjúkraflutningamannsins sem fórst í flugslysinu á Akureyri um verslunarmannahelgina, en útför hans fer fram í dag.