Tenglar

23. ágúst 2021 | Sveinn Ragnarsson

Slökkvistöð rís í Flatey

1 af 5

Undanfarna mánuði hafa vaskir menn á vegum Flateyjarveitna og Framfarafélagsins unnið að byggingu húss sem á að geyma allan slökkvibúnað sem er í Flatey. Gert er ráð fyrir að þarna verði öryggismiðstöð þar sem auk slökkvibúnaðar verði geymd sjúkragögn ýmis konar.

 

Nokkuð lengi hefur staðið til að sveitarfélagið reisti hús til að geta geymt slökkvidælur og annan búnað inni á einum stað, en þar sem það hafði dregist meir en góðu hófi gegndi var gengið til samninga við Flateyjarveitur um að hrinda verkinu í framkvæmd.

 

Í apríl í vor var steyptur grunnur undir stöðina og nú er húsið risið. Reiknað er með að það verði tilbúið til notkunar í haust.

 

Góð grein er um þetta á visir.is

Meðfylgjandi myndir eru úr ýmsum áttum.

 

Athugasemdir

Gunnar Sveinsson, mnudagur 23 gst kl: 16:49

Glæsilegt framtak Flateyinga og fleiri úr nálægum eyjum. Húsið er nú risið á grunni, fokhelt, glerjað, klætt að utan og einangrað að innan. Unnið verður á næstu vikum við loka frágang innandyra. Stór glæsilegt hús og Flatey til sóma og samtakamætti Flateyinga í sameiginlegum málefnum þeirra. Saman byggjum við slökkvistöð.

Gunnar Sveinsson
Eyjólfshús, Flatey

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31