Tenglar

6. desember 2012 |

Slysavarnir: Prófun gátlista byrjaði í Reykhólahreppi

Séð yfir Innsveitina í Reykhólahreppi. Ljósm. Árni Geirsson.
Séð yfir Innsveitina í Reykhólahreppi. Ljósm. Árni Geirsson.

Frá því í byrjun nóvember hafa Bændasamtök Íslands og Búnaðarfélag Reykhólahrepps verið í samstarfi við að prófa gagnsemi gátlista um „Áætlun um öryggi og heilbrigði við landbúnaðarstörf“. Starfsmaður frá Bændasamtökunum heimsótti 26 bæi í Reykhólahreppi í byrjun nóvember og var svo aftur á ferðinni nálægt síðustu mánaðamótum og safnaði þá saman athugasemdum sem komu í ljós við útfyllingu gátlistanna.

 

„Markmiðið með þessu verkefni er að auka öryggi og fækka slysum og óhöppum í og við landbúnaðarstörf. Það er raunar skylda allra atvinnurekanda að framkvæma þannig áhættumat á sínum vinnustað,“ segir Hjörtur Leonard Jónsson hjá Bændasamtökunum.

 

Samkvæmt skoðanakönnun sem gerð var árið 2004, þar sem rúmlega 1.100 býli með meira en 100 ærgildi svöruðu, höfðu 18,3% svarenda verið frá vinnu í meira en 14 daga árið á undan vegna slysa í og við landbúnaðarstörf.

 

Sjá hér ýmislegt efni sem þetta varðar (vefur Bændasamtaka Íslands)

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31