12. mars 2009 |
Smáauglýsingadálkur kominn hér á vefinn á ný
Snemma í vetur var settur hér inn á vefinn dálkur fyrir smáauglýsingar og annað smálegt sem fólk vildi koma á framfæri. Undirtektir voru sáradræmar og eftir reynslutíma í einn eða tvo mánuði var þessi dálkur felldur burt. Nú hefur verið óskað eftir því að dálkur þessi verði settur inn á nýjan leik og reynslutíminn hafður lengri. Dálkinn er að finna undir Smáauglýsingar í valmyndinni hér vinstra megin. Þar segir m.a. í inngangi, að ekki sé til þess ætlast að þar birtist auglýsingar í atvinnuskyni frá fólki eða fyrirtækjum sem hafa engin sérstök tengsl við Reykhólahrepp.