24. febrúar 2012 |
Smærri styrkir til úrbóta á ferðamannastöðum
Ferðamálastofa auglýsir eftir umsóknum um styrki til smærri verkefna til úrbóta í umhverfismálum á ferðamannastöðum. Áhersla er á verkefni tengd uppbyggingu og vöruþróun gönguleiða og hjólaleiða, bættu aðgengi og öryggi ferðamanna og söguferðamennsku. Hámarksupphæð hvers styrks verður kr. 800 þúsund og er hann ætlaður fyrir efniskostnaði og/eða hönnun.
Umsóknarfrestur er til og með 12. mars.
Við úthlutun verður meðal annars tekið mið af ástandi og álagi á svæði og mikilvægi aðgerðanna út frá náttúruverndarsjónarmiðum. Einnig verður tekið tillit til þess hvort viðkomandi verkefni nýtur þegar fjárstuðnings opinberra aðila. Ekki verður sérstaklega litið til dreifingar verkefna eftir landshlutum.