Tenglar

23. nóvember 2016 | Umsjón

Smáforrit fyrir snjallsíma (app) hjá Orkubúinu

Starfsmenn Orkubús Vestfjarða hafa hannað smáforrit fyrir snjallsíma (OV-appið) sem gefur almenningi aðgang að öllum tilkynningum frá fyrirtækinu beint í snjallsímann. Forritinu er sérstaklega ætlað að mæta þörf fyrir hraða og hnitmiðaða upplýsingagjöf, t.d. við straumrof eða þegar miðla þarf upplýsingum varðandi rekstur dreifikerfisins og viðhald.

 

Þetta kemur fram á vef Orkubúsins. Þar segir einnig:

 

Um leið og forritið þjónar sem farvegur fyrir tilkynningar frá fyrirtækinu er það jafnframt leið inn á heimasíðu Orkubúsins með öllum þeim upplýsingum sem þar er að finna. Auðvelt er t.d. að senda inn tilkynningu um álestur eða notendaskipti beint úr snjallsímanum í gegnum heimasíðuna með því að nota flýtileið í „OV-appinu“.

 

Jafnhliða þróun forritsins hefur verið unnið að því að endurbæta verkferla við upplýsingagjöf varðandi straumrof eða bilanir og viðbrögð við þeim. Markmiðið er stutt og hnitmiðuð upplýsingagjöf sem berist notendum fljótt. Notendur geta jafnframt fengið sömu upplýsingar sendar beint í tölvupósti um leið og tilkynningar eru sendar út. Til þess þarf einungis að skrá sig á póstlista OV sem finna má hér.

 

Viðskiptavinir og aðrir áhugasamir eru hvattir til að sækja nýja appið sem komið er í dreifingu á Play Store fyrir snjalltæki með Android stýrikerfinu, en stefnt er að því að útgáfa fyrir iPhone verði tilbúin í janúar.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31