3. maí 2014 | vefstjori@reykholar.is
Snæbjörn áfram formaður Breiðfirðingafélagsins
Nokkrar breytingar urðu á stjórn Breiðfirðingafélagsins á síðasta aðalfundi, en Sæunn G. Thorarensen, Júlíana Ósk Guðmundsdóttir og Alvilda Þóra Elísdóttir gáfu ekki kost á sér áfram. Voru þeim þökkuð vel unnin störf. Snæbjörn Kristjánsson var endurkjörinn formaður félagsins enn á ný, en stjórnin er að öðru leyti þannig skipuð:
Sigurður Eyjólfsson er varaformaður, Hörður Rúnar Einarsson gjaldkeri, Bjarni Kristjánsson varagjaldkeri, Jófríður Benediktsdóttir ritari, Finnbjörn Gíslason vararitari og Hulda Karlsdóttir meðstjórnandi. Í varastjórn eru Kristjón Sigurðsson, Þorsteinn Kristjánsson og Sigrún Eyjólfsdóttir.