1. maí 2015 |
Snæbjörn frá Breiðalæk endurkjörinn enn sem fyrr
Snæbjörn Kristjánsson frá Breiðalæk á Barðaströnd var enn á ný endurkjörinn formaður Breiðfirðingafélagsins á aðalfundi þess fyrir nokkru. Á fundinum var samþykkt að fækka fólki í stjórn, þannig að stjórnarmenn séu fimm og tveir til vara, en í stjórn hafa verið sjö manns og þrír til vara.
Auk Snæbjarnar Kristjánssonar eru í nýkjörinni stjórn þau Hörður Rúnar Einarsson gjaldkeri, Jófríður Benediktsdóttir ritari og meðstjórnendurnir Finnbjörn Gíslason og Sigrún Eyjólfsdóttir. Varamenn eru Bjarni Kristjánsson og Sigurður Sigurðarson.