Tenglar

10. ágúst 2008 |

Snæfellsjökull eða Snæfellsskafl?

Mynd tekin á Reykhólum á mánudag eða fyrir sex dögum.
Mynd tekin á Reykhólum á mánudag eða fyrir sex dögum.
1 af 2

Eitthvað virðist Snæfellsjökull misjafn ásýndum, allt eftir því hvaðan horft er á hann. Nema þá að hann hafi bráðnað gríðarlega núna allra síðustu daga. „Ljósmyndari sem var á ferð við jökulinn á föstudag segir hann minna meira á snjóskafl í dag heldur en jökul", segir á mbl.is í dag og með fylgir ljósmynd til sannindamerkis. Hér er aftur á móti endurbirt ljósmynd sem tekin var á Reykhólum á mánudaginn, eða fjórum dögum fyrr. Er þetta sama fjallið, er þetta sami jökullinn, er þetta sami skaflinn?

Fréttin á mbl.is er á þessa leið:

 

„Mikið hefur verið fjallað um áhrif hækkandi hitastigs á bráðnun jökla og ljóst er að Snæfellsjökull hefur látið mikið á sjá að undanförnu. Ljósmyndari sem var á ferð við jökulinn á föstudag segir hann minna meira á snjóskafl í dag heldur en jökul.

 

Í síðustu viku var kynnt skýrsla vísindanefndar um loftslagsbreytingar á Íslandi, en þar kom m.a. fram að allir jöklar landsins hafi hopað frá árinu 1995 og muni hopa ört alla 21. öldina.

 

Fyrir rúmri viku síðan varaði landvörður í þjóðgarðinum Snæfellsjökli við ferðum upp á jökulinn, sem er orðinn mjög sprunginn og blautur svo hætta getur stafað af. Ástæðuna má líklega rekja til mikilla sumarhita en talsverð sólbráð hefur verið undanfarið og því opnast sprungur á jöklinum sem gera hann erfiðan yfirferðar. Fyrirtækið Snjófell hefur hætt við frekari skipulagðar vélsleðaferðir á jökulinn í sumar af þessum sökum.

 

Í frægri sögu rithöfundarins Jules Verne, Leyndardómar Snæfellsjökuls, er jökullinn sagður geyma innganginn að miðju jarðar. Haldi jökullinn áfram að hopa má eflaust gera ráð fyrir að inngangurinn muni brátt koma í ljós.“


Svona má ljúga jafnvel með ljósmyndum. Efalítið er hægt að komast einhvers staðar að rótum Vatnajökuls og taka mynd þannig að ekkert sjáist nema svo sem ein fönn ...
 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31