7. júní 2013 | vefstjori@reykholar.is
Snyrtivörukynning á Reykhólum
Kynning á ýmsum hágæða snyrtivörum frá Ítalíu og Þýskalandi verður í borðsal Reykhólaskóla milli klukkan 14 og 16 á morgun, laugardaginn 8. júní. Í kynningu segir, að þetta séu ekki einungis frábærar vörur heldur einnig 50-70% ódýrari en á almennum markaði. Fram kemur að meik séu frá kr. 2.490, varalitir frá kr. 1.100, maskarar á kr. 2.490, varablýantar á kr. 1.590, naglalökk á kr. 1.590, krem á kr. 3.190, ilmvötn frá kr. 3.200 og annað eftir því.
Þar að auki:
- Gefin góð ráð varðandi förðun
- Tilboð
- Happdrætti
- Pantanir teknar
- Starfsmöguleikar kynntir – vilt þú gerast dreifingaraðili hjá FM Iceland?