Tenglar

12. október 2016 | Umsjón

Söfnunarféð rennur til kaupa á betri tækjabúnaði

Bleika slaufan 2016.
Bleika slaufan 2016.

Bleika slaufan 2016 er komin í Hólabúð á Reykhólum. Söfnunarfé vegna sölu hennar verður varið óskertu til endurnýjunar tækjabúnaðar til skipulegrar leitar að brjóstakrabbameini. „Ávinningur af endurnýjuðum tækjabúnaði er margþættur og má þar nefna minni geislun og minni óþægindi við myndatökur, aukið öryggi við greiningar og hagræði vegna lægri bilanatíðni og sparnað við viðhald tækja,“ segir á vef Krabbameinsfélags Íslands.

 

Þetta er í fimmta sinn sem Krabbameinsfélagið og Félag íslenskra gullsmiða halda samkeppni um hönnun Bleiku slaufunnar. Sigurvegarar að þessu sinni voru Lovísa Halldórsdóttir Olesen og Unnur Eir Björnsdóttir. Þær voru samtíða í námi og útskrifuðust úr Iðnskólanum í Reykjavík árið 2007. Að námi loknu störfuðu þær báðar á verkstæðum, Lovísa hjá Carat og Unnur í Meba þar sem hún starfar enn. Báðar hanna þær og smíða undir eigin merki.

 

Krabbameinsfélagið telur mikinn hag í því fyrir báða aðila að hönnun Bleiku slaufunnar sé í höndum íslenskra fagmanna. Sú hefð sem skapast hefur með samstarfinu og framleiðslu slaufunnar er einstök í heiminum. Fjölmargir safna slaufunni ár frá ári og hróður íslenskra hönnuða berst langt úr fyrir landsteinana, segir á vef félagsins.

 

Bleika slaufan (sem er næla) kostar 2000 krónur.

 

Krabbameinsfélag Breiðfirðinga er meðal aðildarfélaga Krabbameinsfélags Íslands.

 

Krabbameinsfélag Íslands

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31