16. júlí 2019 | Sveinn Ragnarsson
Sögurölt á Stað í Steingrímsfirði
Fimmtudaginn 18. júlí kl. 19:30 verður vikulegt Sögurölt á dagskránni, en Byggðasafn Dalamanna og Sauðfjársetur á Ströndum stenda fyrir þeim viðburðum í samvinnu við fleiri.
Nú verður gengið um holt og hæðir við Stað í Steingrímsfirði, auk þess sem kirkjugarðurinn og Staðarkirkja verða skoðuð. Yfirdrifið er af sögum og sögnum sem tengjast bænum og kirkjunni.
Mæting er heima á Stað.