Tenglar

18. febrúar 2016 |

Sögustund á Laugum í Sælingsdal

Hafdís og Matthías í Húsavík ásamt Höllu Steinólfsdóttur í Fagradal.
Hafdís og Matthías í Húsavík ásamt Höllu Steinólfsdóttur í Fagradal.

Hafdís Sturlaugsdóttir flytur núna á laugardaginn erindi um gróðurfar á Vestfjörðum og í Dölum á Byggðasafni Dalamanna á Laugum í Sælings-dal. Hafdís er bóndi í Húsavík á Ströndum og landnýtingarfræðingur hjá Náttúrustofu Vestfjarða. Þá verða til sýnis og greiningar ljósmyndir úr filmusafni Jóns og Guðmundar í Ljárskógum og líka eitthvað af ógreindum ljósmyndum í vörslu Byggðasafns Dalamanna.

 

Sögustundin hefst kl. 15, en safnið er opið kl. 14-18. Aðgangseyrir er 500 krónur fyrir fullorðna og kaffi á könnunni. Frítt er fyrir yngri en 18 ára.

 

Sælingsdalslaug verður opin kl. 14-18 þennan dag.

 

Þetta kemur fram á vef Dalabyggðar.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31