23. apríl 2015 |
Sólbjört sumarbyrjun á Reykhólum
Sumardagurinn fyrsti var sólríkur á Reykhólum að þessu sinni, hiti nálægt frostmarkinu mestan hluta dags og nokkur blástur af norðaustri. Vetur og sumar frusu saman og þykir ýmsum vita á gott. Myndin var tekin um klukkan hálfsjö þegar skin sólarinnar var orðið nokkuð hallfleytt á móti vindinum.