11. mars 2011 |
Sólin sest á skrifstofu Reykhólahrepps
Þessar myndir tók Sveinn Ragnarsson á Svarfhóli við sólarlag í kvöld. Sólin var ískyggilega nærri ykkur þarna á Reykhólum, sagði hann, enda því líkast frá honum séð að hún væri að tylla sér á skrifstofu Reykhólahrepps. Myndirnar tók Sveinn við fjöruna í Geiradal neðan við gamla afleggjarann upp á Tröllatunguheiði og horft er yfir Króksfjörð til þorpsins á Reykhólum. Til hægri er Reykjanesfjall en yst til vinstri á mynd nr. 3 má sjá mjölturna Þörungaverksmiðjunnar.
Smellið á myndirnar til að stækka þær.
Væntanlega á sjötta áratug síðustu aldar söng Haukur Morthens inn á plötu lagið Capri Catarina. Ljóðið er eftir Davíð Stefánsson skáld frá Fagraskógi og þar segir á einum stað:
Af hæsta tindi hamingjunnar
horfðum við um sólarlag ...
P.s.: Hugsanlega gæti einhver misskilið orðalagið í fyrirsögninni en þá verður bara að hafa það. Ekki eru neinar vísbendingar um yfirvofandi sólsetur hjá sveitarfélaginu!