5. nóvember 2015 |
Solla Magg kemur og nuddar
Solla Magg.
Sólveig Sigríður Magnúsdóttir sjúkraliði og nuddari (betur þekkt sem Solla Magg), sem bjó og starfaði á Reykhólum um árabil, kemur á gamlar slóðir í næstu viku til að nudda. Um er að ræða partanudd, heilnudd, svæðanudd og slökunarnudd.
Tímapantanir í síma 897 2570.
Anna Björnsdóttir, fstudagur 06 nvember kl: 20:16
Ég sé að hún nefnir ekki festumeinanuddið sem hún er best í á Íslandi enda sú eina sem kann það.
Ég er búin að fara í þrjá tíma núna en hef farið áður.
Hún er að gera kraftaverk á fætinum á mér þar sem ég hef haft verk í honum og verið hölt í nokkra mánuði en nú er ég alsæl verkurinn næstum alveg farin.
Einn tími í viðbót og þá smellur þetta.
Ef þið sem lesið þetta eru með verki í öxlum,tennisolboga,mjöðmum,hné eða fætinum eins og ég, minni hana á það að hún er sú eina sem kann og getur því hún á það til að gleyma því.
Kveðja til Reykhólabúa og hinna.
Anna.