Tenglar

13. ágúst 2011 |

Sölvafjara og sushi - fjölskylduvænt námskeið

Söl á íslenskri sölvafjöru.
Söl á íslenskri sölvafjöru.

Ólafsdalsfélagið gengst laugardaginn 20. ágúst kl. 15-18.30 fyrir fjölskylduvænu námskeiði undir heitinu Sölvafjara og sushi í Tjarnarlundi í Saurbæ við Gilsfjörð. Þar verður kynnt hugmyndafræði Slow Food hreyfingarinnar og nýting sölva og þara eins og hún var fyrrum hér á landi og í Ólafsdalsskólanum á sínum tíma. Gengið verður á sölvafjöru við Tjaldanes og safnað þangi, þara og sölvum. Einnig verður sýnikennsla, smakk og kynning á hugmyndafræði og aðferðum sushi. Á sama tíma verður barnanámskeið um ströndina, þang og þara, byggt, leikið og smakkað.

 

Leiðbeinendur eru meistarakokkurinn Rúnar Marvinsson og Dominique Pledel frá Slow Food Reykjavík.

 

Frekari upplýsingar og skráning í netfanginu olafsdalur@gmail.com. Vinsamlegast skráið nafn, kennitölu, fullt heimilisfang, síma og netfang og nafn námskeiðs. Líka nánari upplýsingar í síma 896 1930.

 

Námskeiðið er haldið í samstarfi við Vaxtarsamning Vesturlands, Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Slow Food Reykjavík, félagið Matur-saga-menning, Þörungaverksmiðjuna á Reykhólum, Þjóðfræðistofu, Reykhólahrepp og Dalabyggð.

 

Ólafsdalsfélagið

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31