Tenglar

12. apríl 2014 | vefstjori@reykholar.is

Söngskemmtun og kjötsúpa á sumardaginn fyrsta

Karlakórinn Söngbræður ásamt stjórnandanum Viðari Guðmundssyni.
Karlakórinn Söngbræður ásamt stjórnandanum Viðari Guðmundssyni.

Karlakórinn Söngbræður í Borgarfjarðarhéraði undir stjórn Viðars Guðmundssonar, organista í Reykhólaprestakalli, heldur tónleika í íþróttahúsinu á Reykhólum að kvöldi fyrsta sumardags, 24. apríl, og hefjast þeir kl. 20. Tónleikarnir eru á vegum Lionsdeildarinnar í Reykhólahreppi. Í hléi verður kjötsúpa á borðum.

 

Aðgangseyrir er kr. 5.000 en frítt fyrir yngri en 16 ára.

 

Karlakórinn Söngbræður hefur starfað í Borgarfirði síðan 1978, en það haust hófu nokkrir menn í innstu sveitum héraðsins að syngja saman fjórraddað í félagsheimili sínu, Búðarási. Það var um það bil þrefaldur kvartett. Fyrstu árin gekk þessi sönghópur, þá enn nafnlaus, hægum og hikandi skrefum út í lífið, en efldist smám saman að fjölda og getu jafnframt því sem félagssvæði hans stækkaði og nær nú um mest allt héraðið.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Jl 2024 »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31