1. júní 2012 |
Sorptunnur og moltugerðarílát á tilboðsverði
Íbúum Reykhólahrepps gefst kostur á að kaupa 240 l sorptunnur til nota utandyra á kr. 5.000. Einnig eru í boði ílát til jarðgerðar eða moltugerðar úr lífrænum úrgangi á kr. 30.000. Þeir sem vilja nýta sér þetta eru beðnir að panta á skrifstofu Reykhólahrepps fyrir miðvikudag í síma 434 7880 eða netpósti. Um er að ræða tímabundið tilboð vegna hagstæðra flutninga með gámum, sem verða munu á nýja gámasvæðinu á Reykhólum.
► Sjá einnig næstu frétt á undan: Sorpflokkun í Reykhólahreppi hafin