22. ágúst 2011 |
Sparið rafmagn - líkur á skömmtun í Reykhólahreppi
Vegna vinnu við spenni í aðveitustöð Orkubús Vestfjarða í Geiradal allan daginn á morgun, þriðjudag, eða frá kl. 8 til 18, má búast við rafmagnsskömmtun í Reykhólahreppi. Dísilstöðin á Reykhólum verður keyrð en að líkindum annar hún ekki allri þörfinni. Notendur eru beðnir að fara eins sparlega með rafmagnið og þeir geta á þessum tíma.