Sr. Elína Hrund eini umsækjandinn
Ein umsókn barst um embætti sóknarprests í Reykhólaprestakalli, frá sr. Elínu Hrund Kristjánsdóttur, settum sóknarpresti. Umsóknarfrestur rann út 18. apríl. Embættið verður veitt frá 1. júní. Biskup Íslands skipar í embættið að fenginni umsögn valnefndar, en hana skipa níu manns úr prestakallinu ásamt prófasti Vestfjarðaprófastsdæmis. Skipunartími er fimm ár.
Sr. Elína Hrund hefur þjónað sóknunum sex í prestakallinu í þrjú og hálft ár, upphaflega í afleysingum fyrir sr. Sjöfn Þór. Sjöfn ákvað hins vegar að segja starfi sínu lausu eftir barneignarorlof og hefur Elína þjónað í hennar stað lausráðin síðan.
► Umsóknin mín er farin með póstinum (24. mars 2012)
► Elína Hrund kemur til starfa í Reykhólaprestakalli (25. okt. 2008)
Sig.Torfi, mnudagur 23 aprl kl: 23:39
Glæsilegt!!!