30. september 2015 |
Sr. Jóhanna Sigmarsdóttir leysir af á Reykhólum
Eins og hér kom fram var sr. Elína Hrund Kristjánsdóttir á Reykhólum fyrir nokkru skipuð í embætti sóknarprests í Oddaprestakalli syðra frá 1. október. Í stað hennar hefur sr. Jóhanna Sigmarsdóttir verið sett til að sinna þjónustu í Reykhólaprestakalli fram að áramótum. Hún var áður sóknarprestur og prófastur á Eiðum á Fljótsdalshéraði. Ekki liggur fyrir hvenær Reykhólaprestakall verður auglýst laust til umsóknar.
14.09.2015 Sr. Elína Hrund hverfur frá Reykhólum
María Maack, fimmtudagur 01 oktber kl: 13:40
Gott að lesa þetta. Æ, en hvað ég vildi óska að við gætum líka haft aðgengilegt tónlistarfremjandi við kirkjuna.