Tenglar

5. júní 2013 | vefstjori@reykholar.is

Staða félagsmálastjóra laus til umsóknar

Auglýst er starf félagsmálastjóra Stranda og Reykhólahrepps. Eins og hér kom fram í vor sagði Hildur Jakobína Gísladóttir, sem gegnt hefur stöðunni frá upphafi snemma árs 2011, starfi sínu lausu af persónulegum ástæðum vegna brottflutnings og lætur af störfum í næsta mánuði. Leitað er eftir manneskju „sem hefur vilja og getu til að leiða áframhaldandi uppbyggingu og þróun á félagsþjónustu á svæðinu“.

 

Starfið krefst ferðalaga um svæðið og þarf félagsmálastjóri að hafa bílpróf og bíl til umráða.

 

Smellið hér fyrir nánari upplýsingar

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2025 »
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31