Tenglar

14. febrúar 2014 | vefstjori@reykholar.is

Starf Félags eldri borgara fram á vorið

Félag eldri borgara í Dalabyggð og Reykhólahreppi (FEBDOR) heldur sínu striki þótt illa hafi viðrað að undanförnu. Gönguhópurinn gengur mánudaga og föstudaga og hittist í upphafi hjá Samkaupum í Búðardal kl.10.30. Kaffisopi í Silfurtúni að göngu lokinni. Kaffisopinn á þriðjudögum verður á sínum stað kl. 10.30 í Silfurtúni í boði heimilisins. Frítt er í sund á Laugum í Sælingsdal á þriðjudögum og farið frá Leifsbúð kl 15.15. Tækjasalur UDN er opinn fyrir félagsfólk kl. 11.45-12.45 á miðvikudögum. Kórinn æfir kl. 17 á mánudögum í Tónlistarskólanum í Búðardal.

 

Samvera verður á fimmtudögum til vors kl. 13.30-16 í Búðardal og Reykhólahreppi sem hér segir:

  • 20. febrúar: Félagsvist, kaffi (Leifsbúð)
  • 27. febrúar: Opið hús, söngur, kaffi o.fl. (Leifsbúð)
  • 6. mars: Bingó, kaffi (Barmahlíð á Reykhólum, rútuferð úr Búðardal)
  • 13. mars: Opið hús, kaffi o.fl. (Leifsbúð)
  • 20. mars: Félagsvist og kaffi (Króksfjarðarnes, nánari staðsetning tilkynnt síðar)
  • 27. mars: Aðalfundur, kaffi (Leifsbúð)
  • 3. apríl: Bingó, kaffi o.fl. (Leifsbúð)
  • 10. apríl: Lokasamkoma, dagskrá og kaffi (Leifsbúð)

Kaffi og meðlæti á samverustundum kostar 300 krónur. Hvert bingóspjald kostar 500 krónur.

 

Félag eldri borgara í Dalabyggð og Reykhólahreppi er opið 60 ára og eldri og líka mökum þó að þeir séu yngri. Ýmis fríðindi fylgja félagsaðild, svo sem afsláttur hjá fjölmörgum verslunum og á þjónustu margra fyrirtækja um land allt, afsláttur á bensíni og fleira. Engin kvöð er um þátttöku í viðburðum á vegum félagsins.

 

Í orðsendingu frá stjórn Félags eldri borgara í Dalabyggð og Reykhólahreppi segir:

 

Okkur vantar fleiri virka félaga ef félagið á að starfa áfram af sama krafti. Þið sem eruð hress og ung í anda, komið endilega til liðs við okkur til að efla það góða starf sem er í félaginu. Það væri gaman að fá ykkur með.

 

Formaður FEBDOR er Þrúður Kristjánsdóttir fyrrv. skólastjóri í Búðardal. Tvær í stjórninni eru búsettar í Reykhólahreppi, ritarinn Jóna Valgerður Kristjánsdóttir í Mýrartungu II og gjaldkerinn Björk Bárðardóttir á Reykhólum.

 

Vinsamlegast látið þetta berast til fólks sem e.t.v. veit ekki um aldursmörkin (60 ár) eða þann hag sem félagsfólki stendur til boða. Líka væri gott að láta þá vita sem hugsanlega eru lítið í tölvum.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31