Starf þjónustufulltrúa hjá Reykhólahreppi
Skrifstofa Reykhólahrepps leitar eftir þjónustuliprum þjónustufulltrúa til starfa.
Reykhólahreppur er sveitarfélag á sunnanverðum Vestfjörðum. Á skrifstofu sveitarfélagsins fer fram almenn þjónusta við íbúa sveitarfélagsins, starfsmenn og stofnanir. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem hefur áhuga á því að veita góða þjónustu og hefur mikla hæfni í mannlegum samskiptum.
Miðað er við að ráða í stöðuna frá 1. janúar 2023. Um framtíðarstarf er að ræða ca. 90% starfshlutfall.
Umsókn um starfið skal fylgja skrá yfir menntun og starfsferil og rökstuðningur fyrir hæfni í starfið ásamt upplýsingum um umsagnaraðila.
Nánari upplýsingar veitir sveitarstjóri, Ingibjörg Birna Erlingsdóttir í síma 430-3200 eða með tölvupósti á netfangið sveitarstjori@reykholar.is. Öllum umsóknum verður svarað. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands ísl. sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Hæfniskröfur:
- Gerð er krafa um stúdentspróf
- Reynsla af skrifstofustörfum æskileg.
- Bókhaldsþekking og reynsla af færslu bókhalds æskileg.
- Skipulögð vinnubrögð, sjálfstæði, frumkvæði og dugnaður
- Góðir samskiptahæfileikar, jákvæðni og þjónustulund er nauðsynleg
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði
- Góð almenn tölvukunnátta og hæfni til að tileinka sér ný vinnubrögð.
Umsóknarfrestur er til 15. nóvember 2022. Umsóknir sendist á sveitartjori@reykholar.is